Störf hjá Helix

Framendaforritari

Vilt þú hafa jákvæð áhrif á heilbrigðiskerfið í gegnum tækni?

Við leitum að metnaðarfullum og notendamiðuðum framendaforritara með brennandi áhuga á hönnun og vilja til þess að byggja lausnir sem að hafa raunveruleg áhrif.

Hjá Helix Health hefur skýr og skilvirk hönnun framenda bein áhrif á líf fólks. Hver lína af kóða getur sparað dýrmætan tíma, aukið öryggi og haft raunveruleg áhrif á líðan og lífsgæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks.

Ef þú vilt vinna að lausnum sem skipta máli, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Taka virkan þátt í þróun og viðhaldi notendaviðmóts hugbúnaðarlausna Helix

  • Vinna náið með fjölbreyttum teymum með því markmiði að skapa öflugar og áreiðanlegar lausnir

  • Nýta ný tól og aðferðir (m.a. gervigreind) til að auka skilvirkni og gæði í þróun

  • Sjá til þess að þróun framenda fylgi viðurkenndum og bestu verklagsreglum, með áherslu á gæði, aðgengi og viðhald

  • Vera málsvari fyrir góða notendaupplifun og leggja til úrbætur sem bæta bæði virkni og útlit

  • Deila þekkingu, taka þátt í kóðaúttektum og styðja samfellda faglega þróun teymisins

  • Leggja sitt af mörkum til lausnamiðaðs og jákvæðs teymisanda, þar sem samvinna og virðing eru í forgrunni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sterkur grunnur í HTML, CSS og TypeScript

  • Reynsla af React er kostur

  • Skilningur á responsive hönnun og aðgengismálum (accessibility)

  • Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðað hugarfar

  • Hæfni til að skila lausnum í samstarfi við aðra

  • Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegum greinum, eða sambærileg reynsla

  • Reynsla af eða áhugi á að nýta gervigreind sem hluta af þróunarferli og daglegu vinnuflæði

  • Vilji til að læra hratt, prófa nýja hluti og tileinka sér nýjar leiðir í þróun

Fríðindi

  • Tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.

  • Hvetjandi verkefni þar sem virðing og samvinna eru lykilatriði

  • Sveigjanleika og tækifæri til persónulegs og faglegs vaxtar

  • Tækifæri til að vinna með nýjustu tækni, þar á meðal gervigreind, í raunverulegum verkefnum

  • Samgöngustyrk og íþróttastyrk

  • Líkamsræktaraðstaða í húsinu

  • Frábært mötuneyti

  • Metnaðarfullur stuðningur við starfsfólk í fæðingarorlofi

Vinsamlegast sendið ferilskrá og kynningarbréf með umsókn.


Helix Health hefur þróað tæknilausnir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi í 30 ár. Hér vinnur metnaðarfullt teymi með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur það að leiðarljósi að vilja hafa jákvæð áhrif á samfélagið.

Hjá Helix starfa um 50 starfsmenn í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, þar sem hver lína af kóða hefur raunveruleg áhrif.

Umsóknarfrestur er til og með 9.apríl.

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.


Deila starfi