Almennir skilmálar

Almennir skilmálar Helix ehf.

Hér má nálgast almenna skilmála Helix sem gilda um öll viðskipti Helix ehf. við viðskiptavini þess. Skilmálarnir, ásamt sérsamningum eða samningsviðaukum fela að jafnaði í sér heildarsamning aðila um viðskipti þeirra.

Hjúkrunarfræðingur situr við tölvu

1. Viðskipti við Helix ehf.

1.1. Gildissvið skilmála þessara

Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti og samninga Helix Health ehf., Borgartúni 37, 105 Reykjavík, kt. 450723-1500, vsk. nr. 149997 (hér eftir „Helix“ eða „félagið“) við viðskiptavini félagsins.

Skilmálar þessir ásamt, eftir atvikum, sérskilmálum, þjónustusamningi og samningsviðaukum fyrir hvern viðskiptavin, fela að jafnaði í sér heildarsamning aðila um viðskipti þeirra. Stangist ákvæði skilmála þessara á við ákvæði sem finna má í sérskilmálum, þjónustusamningi eða samningsviðaukum skulu ákvæði þeirra síðarnefndu ganga framar þessum skilmálum.

Að öðru leyti teljast frávik frá þessum skilmálum ekki samþykkt af hálfu félagsins nema undirritað samþykki þess liggi fyrir.

1.2. Samningur aðila

Samningur telst kominn á milli Helix og viðskiptavinar þegar aðilar hafa skrifað undir þjónustusamning, viðskiptavinur samþykkt sérskilmála, samningsviðauka eða tilboð Helix um þjónustu innan gildistíma slíks tilboðs, eða þegar viðskiptavinur byrjar að nýta þjónustu Helix.

Sé ekki kveðið á um gildistíma samnings í samningi aðila skal hann gilda ótímabundið þar til honum er sagt upp, sbr. grein 1.3 í skilmálum þessum.

1.3. Uppsögn samnings

Sé ekki kveðið á um uppsagnarfrest í samningi á milli Helix og viðskiptavinar skal uppsagnarfrestur vera þrír mánuðir og skal uppsögn taka gildi um mánaðarmót.

Helix getur hvenær sem er, fyrirvara- og bótalaust, sagt upp samningi við viðskiptavin vegna brots hans á samningsskyldum nema annað leiði ótvírætt af skilmálum þessum, sérskilmálum, samningum við viðskiptavin eða lögum. Eigi Helix viðskipti við viðskiptavin á grundvelli fleiri samninga en eins, leiða brot hans á einum samningi til þess að Helix getur rift öllum samningum sínum við viðkomandi viðskiptavin, fyrirvara- og bótalaust.

1.4. Samningslok

Við samningslok, af hvaða ástæðu sem er, skulu aðilar skila hvor öðrum innan 10 daga hvers konar eignum og efni, sem látið hefur verið í té og sannanlega er í eigu gagnaðila eða hann hefur ráðstöfunarrétt yfir.

Við samningslok lokast aðgangur að þeim hugbúnaði sem Helix hefur veitt viðskiptavini aðgang að Helix án tafar. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að afrita öll gögn í sinni eigu, sem vistuð eru hjá Helix, fyrir samningslok.

Önnur vinna sem fellur til vegna útleiðingar viðskiptavinar við lok samnings er gjaldfærð á viðskiptavin samkvæmt gildandi verðskrá félagsins.

2. Skilgreiningar

Eftirfarandi hugtök skulu skilgreind með eftirfarandi hætti í skilmálum þessum:

  • Hugbúnaðarleyfi

  • Leyfi til að nota hugbúnað á grundvelli skilmála leyfisveitanda.

  • Hugbúnaður

  • Samheiti yfir hvers konar forrit, snjallforrit og reglur ásamt skjalbúnaði upplýsingavinnslukerfis eða hluti þessa búnaðar.

  • Uppsetning

  • Hugbúnaður, sem komið er fyrir hjá notanda þannig að hann sé tilbúinn til notkunar.

3. Sala og notkun á hugbúnaði

Um sölu og nýtingu á hugbúnaði kunna að gilda sérstakir notendaskilmálar Helix eða framleiðanda hugbúnaðarins. Að öðru leyti fer notkun hugbúnaðar eftir samningum aðila. Í sölu á hugbúnaði felst einungis réttur til notkunar á hugbúnaðinum en ekki framsal á eignarétti, nema um annað sé sérstaklega samið.

3.1. Notkun hugbúnaðar

Viðskiptavinur skuldbindur sig til að nota hugbúnað Helix í samræmi við skilmála þessa og eftir atvikum samning aðila eða sérstaka skilmála og ábyrgist jafnframt að hann muni ekki með ásetningi eða gáleysi nota hugbúnað til að brjóta gegn lögum eða öðrum lögvörðum réttindum Helix eða þriðja aðila. 

Þá ábyrgist viðskiptavinur jafnframt að senda eða miðla ekki vísvitandi gögnum eða forritum er innihalda tölvuvírusa er valdið geta röskun eða villum í hugbúnaði eða öðru er kann að hafa skaðleg áhrif á hugbúnaðinn og eðlilega virkni hans. 

Viðskiptavini er með öllu óheimilt að framselja, afrita, fjölfalda, umbreyta, bakþýða eða hluta sundur hugbúnað, nema lög heimili annað.

Viðskiptavinur skuldbindur sig til að fylgja leiðbeiningum Helix, og eftir atvikum þriðju aðila, um notkun á hugbúnaði og sjá til þess að tengdur vélbúnaður uppfylli gerðar kröfur, eftir því sem við á.

3.2. Hugbúnaður þriðja aðila

Hugbúnaður frá öðrum en Helix er seldur á forsendum framleiðandans eða eiganda réttinda yfir viðkomandi hugbúnaði. Yfirleitt er um að ræða óframseljanlegt leyfi til afmarkaðrar notkunar þannig að eignarréttur til hugbúnaðarins er ekki seldur, heldur aðeins réttur til að nota hann, háð þeim takmörkunum og bundin þeim skilyrðum sem framleiðandi eða eigandi hugbúnaðarins setur. Hugbúnað má ekki selja, leigja, framselja eða afhenda öðrum.

3.3. Ábyrgð viðskiptavinar á hugbúnaðarleyfum

Viðskiptavini er aðeins heimilt að nota þann fjölda hugbúnaðarleyfa, hvort sem um ræðir hugbúnað Helix eða þriðja aðila, sbr. ákvæði 3.1 og 3.2, sem hann hefur keypt leyfi fyrir. Viðskiptavinur er ábyrgur fyrir því að óska eftir fjölgun leyfa, eftir því sem við á.

Komi til úttekta af hálfu þriðja aðila skal viðskiptavinur vinna með Helix að því að sýna fram á réttmæta notkun hugbúnaðar á þeim kerfum sem viðskiptavinur hefur aðgang að.

4. Sala á þjónustu

Helix veitir fagþjónustu á sviði upplýsingatækni við ráðgjöf, kerfishönnun, forritagerð, uppsetningarvinnu, viðhald hugbúnaðar og annað sem tilgreint er í samningi við viðskiptavin. Þjónustan kann að vera í stöðluðu formi eða aðlöguð að aðstæðum hverju sinni.

Í aðalatriðum er um eftirfarandi samningstegundir að ræða:

Verksamningur um ákveðið verkefni, sem skilgreint er í samningi, og gildir á meðan á vinnslu þess stendur. Verksamningur er óuppsegjanlegur á samningstímabili nema ákvæði um riftun eigi við eða aðilar hafi sérstaklega samið um annað. Viðskiptavinur skal greiða fyrir alla þjónustu og hugbúnað, sem látið er í té fram til loka samningsins. Ennfremur skal hann greiða hliðstæð útgjöld, sem stofnað hefur verið til og óafgreidd eru á lokadegi samnings.

Þjónustusamningur er samningur sem gerður er á milli Helix og viðskiptavinar um tiltekna þjónustu af hálfu Helix. Slíkir samningar geta ýmist verið sérsniðnir að viðskiptavini eða staðlaðir fyrir ákveðna þjónustu.

5. Endurgjald og greiðsluskilmálar

5.1.    Almennt

Gjöld fyrir hugbúnað og þjónustu Helix eru listaverð í gildandi verðskrám félagsins hverju sinni, sérverð eða önnur tilgreind verð í samningi. Öll verð eru tilgreind án virðisaukaskatts, nema annað sé tekið fram.

Staðgreiða skal fyrir hugbúnað og þjónustu, nema samið sé sérstaklega um reikningsviðskipti. Í slíkum tilfellum sendir Helix viðskiptavini mánaðarlega reikning vegna sölu á þjónustu. Helix er heimilt að reikningsfæra samningsbundna þjónustu mánuð fram í tímann. Sú þjónusta sem greidd er eftir mældri notkun er almennt reikningsfærð í lok mánaðar eða byrjun næsta mánaðar, enda liggi fyrir allar nauðsynlegar upplýsingar um notkun. Virðisaukaskattur leggst við mánaðarlega reikninga.

Gjalddagi reiknings miðast við útgáfudag en almennt skal eindagi vera 20 dögum eftir gjalddaga. Falli reikningur eða aðrar samningsskuldbindingar í eindaga ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti í samræmi við III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001.

Athugasemdir skulu gerðar við reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga þeirra. Teljast reikningar ella samþykktir af hálfu viðskiptavinar. Þjónustugjald er ekki endurgreitt.

5.2. Aukaverk

Aukaverk teljast öll verk sem ekki falla innan samnings aðila. Greiða skal fyrir öll aukaverk sem Helix vinnur í þágu viðskiptavinar að hans ósk samkvæmt verðskrá eða samþykktum viðskiptakjörum á milli aðila. Ef nauðsynlegt er skal Helix vera heimilt að grípa til aðgerða til varnar tjóni fyrir viðskiptavin án samþykkis hans og skal farið með slíkar aðgerðir sem aukaverk.

Lágmarksgjald fyrir aukaverk eru 2 klst. á dagvinnutíma og 4 klst. utan dagvinnutíma, samkvæmt verðskrá. Dagvinnutími er skilgreindur sem 8-17 virka daga.

5.3. Breytingar á verðskrám

Helix áskilur sér rétt til að breyta verðskrám sínum eftir þörfum hverju sinni. Skulu slíkar verðbreytingar almennt tilkynntar viðskiptavini með 30 daga fyrirvara. Við óvenjulegar aðstæður svo sem við gengislækkun á skömmum tíma, er Helix heimilt að tilkynna viðskipavini um verðbreytingar með 3 daga fyrirvara.

5.4. Ferðakostnaður

Viðskiptavinur skal greiða fyrir allan ferðakostnað, þ.m.t. kostnað vegna eftirfarandi, samkvæmt verðskrá:

  • ferðakostnað og ferðatíma vegna þjónustu á stöðum, þar sem Helix hefur ekki að staðaldri starfsfólk sem þjálfað er til að veita þjónustu við hlutaðeigandi hugbúnað,

  • vinnutíma og ferðakostnað vegna aðgerða sem falla utan umsamins þjónustutíma,

  • vinnutíma á ferðum og ferðalögum og ferðakostnað, sem falla utan við umsamda þjónustu.

6. Skyldur viðskiptavina

Viðskiptavinum ber að gera Helix kleift að sinna þeim hluta þjónustunnar sem fer fram á vinnustað viðskiptavinar og eftir atvikum hjá þriðja aðila, s.s. með því að veita starfsfólki Helix fullnægjandi aðgang að nauðsynlegum rýmum.

Viðskiptavinir bera jafnframt ábyrgð á að veita Helix fullnægjandi upplýsingar svo Helix geti sinnt þjónustu sinni. Þá bera viðskiptavinir ábyrgð á þeim leiðbeiningum og fyrirskipunum sem þeir veita Helix, sem og á réttmæti þeirra upplýsinga sem gefnar eru Helix.

7. Ábyrgð á galla

7.1.Almennt

Helix ber ábyrgð á því að þjónusta og hugbúnaður sé í samræmi við samning aðila, að teknu tilliti til ábyrgðartakmarkana sbr. kafla 8-10 í skilmálum þessum.

Tilkynningar um galla skulu berast Helix með þeim samskiptaleiðum sem lýst er á vefsíðu félagsins. Viðskiptavinur Helix glatar rétti sínum til þess að bera fyrir sig galla ef hann tilkynnir ekki Helix um gallann án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð galla var eða mátti verða hans var og í hverju galli var fólginn.

Ef viðskiptavinur leggur ekki fram kvörtun innan árs frá þeim degi er hann veitti hugbúnaði eða þjónustu viðtöku, getur hann ekki síðar borið gallann fyrir sig.

7.2. Ábyrgð á þjónustu og hugbúnaði

Ábyrgð á hugbúnaði sem er þróaður af Helix, er háð því að notkun hugbúnaðar hafi verið í samræmi við kerfisskráarlýsingar Helix, handbækur og aðrar leiðbeiningar um notkun. Það sama á við um hverskyns þjónustu sem veitt er af Helix.

Helix ábyrgist ekki að hugbúnaður vinni villulaust, án reksturstruflana eða að allar villur hafi verið lagfærðar. Helix ber framleiðandaábyrgð á hugbúnaði sem félagið hefur sjálft þróað. Í þeim tilvikum er Helix er endursöluaðili hugbúnaðar gilda þær ábyrgðartakmarkanir sem eigandi hugbúnaðar hefur sett, svo framarlega sem slíkar takmarkanir stangast ekki á við íslensk lög.

8. Undantekningar á ábyrgð Helix

Öll þjónusta er veitt án skuldbindinga um viðbragðstíma hverju sinni. Helix ábyrgist ekki að hugbúnaður eða þjónusta sé gallalaus, virki án reksturstruflana, að hugbúnaður starfi rétt eða að allar hugbúnaðarvillur sem og aðrar villur séu lagfærðar.

Viðskiptavinur getur ekki krafið Helix um úrbætur vegna tjóns, atvika eða orsaka sem rekja má til:

  • þess að átt hafi verið við hugbúnaðinn af öðrum en viðurkenndum aðila (Helix eða aðila viðurkenndum af Helix),

  • breytinga á veituspennu, rafmagnstruflana eða annarra utanaðkomandi áhrifa,

  • sambandsleysis, rofs á fjarskiptum, þjónustu eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptanetsins hvort sem slíkt má rekja til línubilana, bilana í stöðvum eða annarra ástæðna, nema rekja megi tjónið til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis af hálfu Helix,

  • athafna eða athafnaleysis viðskiptavinar eða þriðja aðila á vegum viðskiptavinar,

  • rangrar, eða slæmrar notkunar á hugbúnaði eða þjónustu Helix,

  • hugbúnaðs sem settur hefur verið upp af viðskiptavini eða öðrum þriðja aðila á umhverfi viðskiptavinar,

  • virkni hugbúnaðar, frá öðrum framleiðendum en Helix,

  • notkunar hugbúnaðar eða gagna í stafrænu formi, svo og ef slík gögn glatast eða týnast, af hvaða ástæðum sem er,

  • þess að leiðbeiningum framleiðanda hugbúnaðar og/eða Helix um notkun er ekki fylgt, eða

  • þess að bilun stafar af rangri tengingu við rafkerfi eða netkerfi.

 

9. Takmarkanir á skaðabótaskyldu

Verði viðskiptavinur fyrir tjóni vegna þjónustu Helix kann viðskiptavinur að eiga rétt til skaðabóta úr hendi Helix.

Réttur viðskiptavinar til skaðabóta úr hendi Helix skal þó takmarkast við beint tjón og bótaábyrgð Helix nær ekki til óbeins eða afleidds tjóns, þ.m.t. rekstrartaps, tapaðra gagna sem leiða kann af notkun á hugbúnaði eða ómöguleika á notkun hugbúnaðar, missis hagnaðar eða viðskiptavildar eða vanefndar viðskiptavinar á samningi við þriðja aðila. Þá er Helix ekki bótaskylt vegna tjóns sem ekki verður rakið til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis félagsins eða þeirra starfsmanna sem félagið ber ábyrgð á. 

Skapist bótaskylda á hendur Helix skal bótaábyrgðin takmarkast við jafnvirði kr. 2.400.000 eða reikningsfærðs kaupverðs þess hugbúnaðar sem um ræðir, hvort sem er lægra. Sé um þjónustu að ræða eða aðgang að hugbúnaði sem þjónustu (e. software as a services), skal bótaábyrgðin takmarkast við jafnvirði kr. 1.200.000 eða þriggja mánaða þjónustugjalds fyrir þá þjónustu sem orsakaði tjónið, hvort sem lægra er.

Bótaþak skal miðast við samanlagða bótafjárhæð Helix á grundvelli samnings aðila.

Undir engum kringumstæðum getur heildarbótaábyrgð Helix verið hærri en kr. 15.000.000.

10. Óviðráðanleg atvik

Geti Helix vegna óviðráðanlegra atvika ekki efnt skyldur sínar gagnvart samningsaðila er félagið laust undan öllum skuldbindingum sínum um þann tíma sem óviðráðanleg atvik (e. force majeure) standa yfir og samningsaðili á ekki rétt til að beita vanefndaúrræðum gagnvart Helix, þ.m.t. kröfum um endurgreiðslu, afslátt, skaðabætur, uppsögn eða riftun.

Með óviðráðanlegum atvikum er átt við atburð eða aðstæður sem ekki eru á valdi Helix enda sé þannig háttað um þau að Helix hafi ekki verið unnt að yfirvinna þau með eðlilegum ráðum. Án takmörkunar um almennt gildi þess sem að framan greinir tekur ákvæði þetta m.a. til styrjalda, uppreisna, skemmdarverka, óeirða, farsótta, náttúruhamfara, aðgerða stjórnvalda svo sem á sviði gjaldeyris- og viðskiptamála, viðskiptabanna, hafnarbanna, almennra samgönguhindrana, flutningsbanna, orkuskorts, hvers kyns netárása, óviðráðanlegra atvika í samskiptum við undirverktaka og birgja og hvers kyns ámóta atvika sem valda röskun á efndum Helix, þ.m.t. ef birgjar eða þjónustuaðilar Helix geta ekki uppfyllt skuldbindingar sínar gagnvart Helix á grundvelli óviðráðanlegra atvika sem leiða til þess að Helix geti ekki efnt skuldbindingar sínar gagnvart samningsaðila. Komi til þess að óviðráðanleg atvik standi yfir í 30 daga samfellt eða lengur getur Helix rift eða sagt upp samningi við samningsaðila fyrirvaralaust án þess að baka sér bótaskyldu.

11. Vanefndir og vanefndaúrræði

Helix áskilur sér rétt til að hætta að veita og eftir atvikum loka á þjónustu til viðskiptavinar komi til vanefnda af hálfu viðskiptavinar.

Til viðbótar öðrum réttindum Helix er félaginu heimilt án undanfarandi tilkynningar til viðskiptavinar að:

  • fjarlægja efni, sem brýtur gegn lögum og reglum, af hugbúnaði,

  • synja viðskiptavini um þjónustu og frekari kaup á hugbúnaði, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 30 daga frá eindaga,

  • synja viðskiptavini um aðgang að gögnum, sem vistuð eru á hugbúnað Helix, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 60 daga frá eindaga,

  • eyða gögnum viðskiptavinar, sem vistuð eru á hugbúnað Helix, hafi reikningur ekki verið greiddur innan 150 daga frá eindaga.

  • Báðir samningsaðilar geta rift samningi án fyrirvara, ef um er að ræða verulega vanefnd af hálfu hins aðilans í samræmi við almennar reglur.

  • Enn fremur er Helix heimilt að beita öllum vanefndaúrræðum, þ.m.t. riftun, ef:

  • viðskiptavinur greiðir ekki reikning Helix innan 30 daga eftir eindaga,

  • viðskiptavinur uppfyllir ekki samningsbundnar skyldur sína við Helix innan 30 daga frá dagsetningu skriflegrar áskorunar frá Helix um að efna skyldur sína,

  • viðskiptavinur notar hugbúnað með öðrum hætti en notkunarskilmálar eða aðrar útgefnar leiðbeiningar um meðferð hans kveða á um,

  • viðskiptavinur notar hugbúnað umfram það sem Helix skilgreinir sem hámarksnotkun á tilgreindu tímabili,

  • viðskiptavini er veitt heimild til greiðslustöðvunar, hann fær heimild til að leita nauðasamninga eða verður gjaldþrota, eða

  • aðrir en starfsmenn Helix hafa, án undanfarandi samþykkis Helix, þjónustað hugbúnað Helix.

  • Á meðal þeirra vanefndaúrræða sem Helix er heimilt að beita hafi viðskiptavinur vanefnt skyldur sínar gagnvart Helix, þ.m.t. með framangreindum hætti, er að:

  • rifta eða segja upp samningi að hluta eða í heild,

  • taka hugbúnað í sína vörslu eða gera hann ónothæfan, og

  • innheimta allar gjaldfallnar og ógjaldfallnar greiðslur samkvæmt viðkomandi samningi.

Tilkynning um riftun skal vera skrifleg og send með sannanlegum hætti.

Verði samningi rift af hálfu Helix ber viðskiptavini að greiða áfallin gjöld samkvæmt samningi aðila auk alls kostnaðar Helix. Enn fremur skal viðskiptavinur halda Helix skaðlausu af öllum útgjöldum og tekjumissi, sem Helix kann að verða fyrir vegna vanefnda viðskiptavinar á samningi.

12. Upplýsingaöryggi og trúnaðarskyldur

Aðilar skulu virða sem trúnaðarmál allar þær upplýsingar sem þeir kunna að öðlast vegna framkvæmdar samnings aðila, þ.á m. um efni samningsins, hugbúnaðarkerfi viðskiptavinar, tengdan hugbúnað, viðskiptamenn, viðskiptasambönd, rekstur, starfsemi, fjármál og viðskiptahætti gagnaðila. Trúnaðarskylda skal haldast eftir að samningi er lokið.

Stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis hjá Helix er vottað samkvæmt ISO 27001:2013 staðlinum og fellur undir stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis móðurfélagsins Origo. Í þeim tilfellum sem viðskiptavinur sér um rekstur einstaka kerfisþátta skal viðskiptavinur tryggja að öryggisráðstafanir séu með viðurkenndum hætti og í samræmi við bestu venjur. Þeir kerfisþættir sem reknir eru af viðskiptavini eru á hans ábyrgð.

Viðskiptavinur skal þegar í stað tilkynna Helix um öll öryggisrof á aðgangi kerfa sem hann kann að verða var við, s.s. innbrotstilraunum, tölvuvírusum, o.þ.h. sem kann að valda truflunum eða skaða eðlilegt rekstrarumhverfi.

13. Persónuvernd

Helix leggur áherslu á að öll vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við gildandi persónuverndarlög. Helix kemur fram sem ábyrgðaraðili í skilningi persónuverndarlaga hvað varðar vinnslu persónuupplýsinga tengiliða sem koma fram fyrir hönd fyrirtækja og annarra lögaðila í viðskiptum við Helix. Um vinnslu Helix á slíkum upplýsingum vísast til persónuverndarstefnu Helix sem finna má á vefsíðu Helix.

Komi til þess að Helix vinni persónuupplýsingar fyrir hönd viðskiptavinar, s.s. í tengslum við þá upplýsingatækniþjónustu sem Helix veitir viðskiptavini, kemur viðskiptavinur fram sem ábyrgðaraðili slíkrar vinnslu í skilningi persónuverndarlaga og Helix sem vinnsluaðili. Undir slíkum kringumstæðum gilda skilmálar Helix um vinnslu persónuupplýsinga, sem aðgengilegir eru á vefsíðu félagsins, Skilmálar Helix um vinnslu persónuupplýsinga félagsins.

14. Hugverkaréttur

Skilmálar þessir skulu ekki hafa áhrif á hugverkarétt að hugbúnaði sem Helix selur viðskiptavini eða veitir viðskiptavini aðgang að. Um rétt viðskiptavinar til notkunar á slíkum réttindum gilda sérstakir skilmálar Helix eða skilmálar viðeigandi rétthafa.

Í þeim tilvikum er þjónusta Helix við viðskiptavin felur í sér aðgang viðskiptavinar að efni, þ.á m. hugbúnaði, gagnagrunnum, handbókum o.s.frv., sem Helix hefur þróað eða er rétthafi að, skal allur hugverkaréttur tilheyra Helix. Þar undir fellur m.a. hvers konar höfundaréttur, vörumerkjaréttur, hönnunarréttur, viðskiptaleyndarmál, sérþekking (e. know-how) sem og einkaleyfi. Á það jafnframt við um efni sem Helix hefur unnið á grundvelli samnings aðila nema um annað sé sérstaklega samið. Ekkert framsal á hugverkaréttindum á sér því stað milli aðila. Á grundvelli samnings aðila skal viðskiptavinur hins vegar fá óframseljanlegt leyfi til að nota viðkomandi efni á gildistíma samnings aðila, eftir því sem við á.

Komi til þess að aðilar þróa eða útbúa hugverkaverndað efni í samvinnu skulu báðir aðilar eignast rétt til þess efnis og hafa aðilar hvor fyrir sig heimild til að ráðstafa því, að því marki sem slík ráðstöfun brýtur ekki gegn öðrum réttindum gagnaðila.

Allur hugverkaréttur að efni sem viðskiptavinur hefur unnið, hannað og þróað án aðkomu Helix skal tilheyra viðskiptavini og ekkert framsal á slíku efni á sér stað nema um annað sé samið. Veiti viðskiptavinur Helix aðgang að slíku efni í tengslum við þjónustuna veitir viðskiptavinur Helix þar með óframseljanlegt leyfi til að nota efnið á samningstíma og skal viðskiptavinur halda Helix skaðlausu af hvers konar kröfum þriðja aðila er byggja á því að notkun Helix á efninu brjóti gegn betri rétti viðkomandi.

Skapist óvissa um hugverkaréttindi Helix sem félagið hefur veitt viðskiptavini leyfi til að nota á grundvelli samnings aðila, s.s. vegna kröfu þriðja aðila sem telur efni Helix brjóta gegn betri rétti viðkomandi, skal Helix ákveða hvort félagið breyti efninu, útvegi viðskiptavini sambærilegt efni eða hvort Helix semji við þriðja aðila um notkun á efninu á meðan ágreiningur stendur yfir.

Helix er ekki heimilt að vísa til viðskiptavinar á vefsíðu sinni eða birta vörumerki hans þar, sem og í öðru kynningarefni á vegum Helix, nema með samþykki viðskiptavinar. Viðskiptavinur skal jafnframt leita samþykkis Helix fyrir slíkri notkun á nafni og vörumerkjum í eigu Helix.

15. Vefsíður Helix

Allar upplýsingar á vefsíðum Helix eru birtar með fyrirvara um villur, hvort sem um er að ræða almennan texta, vöru- og/eða þjónustulýsingar, verð eða myndir.

Helix ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna notkunar/misnotkunar þriðja aðila á vefsíðum Helix.

16. Annað

16.1. Samningssamband viðskiptavinar við þriðja aðila

Í tengslum við endursölu Helix á þjónustu, leyfum og hugbúnaði þriðju aðila til viðskiptavinar kann að myndast beint samningssamband milli viðkomandi þriðja aðila og viðskiptavinar. Í slíkum tilvikum gengst viðskiptavinur þá undir skilmála viðkomandi þriðja aðila eða ber ábyrgð á að ganga frá sérstökum samningi við viðkomandi sem er Helix óviðkomandi.

16.2. Framsal réttinda og undirverktakar

Helix er heimilt að framselja, að hluta eða öllu leyti, réttindi sín og skyldur, samkvæmt skilmálum þessum, auk annarra samninga Helix við viðkomandi viðskiptavin, til félags innan þeirrar samstæðu sem Helix tilheyrir með tilkynningu til viðskiptavinar. Þá skal Helix heimilt að framselja réttindi sín og skyldur að hluta eða öllu leyti á grundvelli þessara skilmála til þriðja aðila, sé ekki mælt fyrir um annað í samningi aðila. Viðskiptavinum er óheimilt að framselja réttindi sín og skyldur án samþykkis Helix.

Helix er heimilt að útvista verkefnum í tengslum við samning aðila, að hluta eða öllu leyti, til þriðja aðila, að því marki sem heimilt er samkvæmt lögum og eftir atvikum skilmálum Helix um vinnslu persónuupplýsinga.

16.3. Lög og varnarþing

Samningssamband Helix við viðskiptavini sína fellur undir íslensk lög.

Komi til ágreinings sem ekki tekst að sætta skal leysa úr máli með gerðarmeðferð í samræmi við reglur Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands sem í gildi er þegar gerðarmeðferð hefst og skulu reglurnar fyrir gerðardóminn gilda um málsmeðferð. Ákvæði þetta ásamt reglunum telst gerðarsamningur milli aðila. 

Ef einhver ákvæði skilmála þessara eða samnings aðila eru í andstöðu við ófrávíkjanleg lög og reglur sem um þá gilda eða ef slík ákvæði eru dæmd ógild af gerðardómi eða dómstóli sem hefur lögsögu yfir samningsaðilum, skulu slík samningsákvæði umorðuð á þann veg að sem minnst röskun verði á upphaflegum tilgangi samningsaðilanna innan ramma viðkomandi laga og dómsúrlausna, og skulu ákvæði skilmálanna og/eða samnings aðila að öðru leyti halda fullu gildi.

16.4. Breytingar á skilmálum

Helix áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum og munu breytingarnar verða tilkynntar með a.m.k. 30 daga fyrirvara á vefsíðu félagsins.

Skilmálar þessir taka gildi þann 16.10.2023 og eiga við um viðskipti félagsins við viðskiptavini sína hverju sinni.