Sérhæfð þjónusta

Við bjóðum upp á lausnir fyrir fjölbreytta sérhæfða heilbrigðisþjónustu, hvort sem um er að ræða sjálfstætt starfandi fagaðila, einkareknar stofur eða stærri þverfagleg teymi. Lausnirnar styðja við allt ferlið frá móttöku og tímabókunum til klínískrar skráningar og eftirfylgni.

Silva

Meðal notenda

Fagaðilar sem geta treyst á okkar lausnir

  • Tannlæknar
  • Sjúkraþjálfarar
  • Endurhæfingarteymi
  • Sálfræðingar
  • Húðlæknar
  • Talmeinafræðingar
  • Iðjuþjálfarar
  • Næringarfræðingar
  • Aðrir sérfræðilæknar

Lausnir sem henta ykkar starfsemi

Klínísk skráning og sjúkraskrá

Saga er heildstætt sjúkraskrárkerfi sem tryggir samfellda og örugga skráningu.

Tímabóknanir og tilvísanir

Silva einfaldar móttökuferlið frá tilvísun til bókaðs tíma og dregur úr handavinnu. Niðurstaðan er styttri biðlistar og meiri tími fyrir faglega vinnu.

Hópumsjón og eftirfylgni

Vaka gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að halda utan um hópmeðferðir, spurningalista og senda rafrænt fræðsluefni úr Sögu sjúkraskrá.

Fjarlækningar

Vissa býður upp á fjarheilbrigðisþjónustu í formi samskipta og einnig er hægt að greiða fyrir þjónustuna í lausninni.

Skráning verkþátta

Iðunn er smáforrit sem gerir starfsfólki kleift að skrá gögn beint í sjúkraskrá í rauntíma á öruggan og einfaldan hátt. Sparar tíma heilbrigðisstarfsfólks á deildum með legudeildum

Lyfjaskráning

Lyfjavaki heldur utan um lyfjatiltekt og lyfjagjafir og tryggir rekjanleika í samræmi við reglugerðir. Hentar sérstaklega vel þar sem er legudeild, t.d. á endurhæfingarstofnunum.

Meira svigrúm fyrir faglega vinnu

Skilvirkari bókanir

Silva sjálfvirknivæðir tímabókanir og tilvísanir þannig að starfsfólk ver minni tíma í símtöl og handvirkt utanumhald.

Örugg skráning á einum stað

Allar upplýsingar um skjólstæðinga eru skráðar í Sögu og aðgengilegar þeim sem þurfa.

Sniðið að ykkar starfsemi

Lausnirnar eru aðlagaðar að þörfum hverrar starfsemi, óháð stærð eða sérsviði.

Betra flæði í móttöku með afgreiðslustöndum

Við bjóðum upp á sjálfsafgreiðslulausnir fyrir afgreiðslustanda sem gera innritun hraðari, öruggari og notendavænni. Lausnirnar bæta upplifun sjúklinga og hámarka nýtingu mannauðs í móttöku.

Umsagnir

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við finnum lausnina saman