
05/02/2025
Viðburður
Örnámskeið | Skráning fyrstu komu einstaklings
Skráning heilbrigðisstarfsmanns í Sögu - fyrsta koma einstaklings. Á þessu örnámskeiði er fjallað um F8/Útfylling blaða virknina í Sögu, flýtiblöð, kaflaskiptingar blaða, flýtitexta, upplýsingar frá þriðja aðila, greiningar, úrlausnir, forsíðu sjúklings, miðlægt lyfjakort, skilaboð innan Sögu og hópa.
05/02/25 - 05/02/25
Teams | Fjarfundur
Námskeiðið er fyrir allt heilbrigðisstarfsfólk sem notar Sögu og er um 20-25 mín. Í lok námskeiðs er boðið upp á opnar fyrirspurnir.
Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.
Myndband
Fyrsta koma einstaklings | Upptaka

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir
Þjónustusérfræðingur hjá Helix
Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.