
05/06/2025
Viðburður
Heilbrigðistækni: Árangur og tækifæri framtíðarinnar
Hvar liggja tækifæri í heilbrigðistækni?
05/06/25
16:30
Hljóðberg | Hannesarholt
Við hjá Helix bjóðum til viðburðar þar sem nokkrir sérfræðingar á sviði heilbrigðistækni, þau Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, Ph.D, Hulda Hallgrímsdóttir hjá Nox Medical, Kjartan Þórsson hjá Prescriby og Einar Geirsson frá Helix ræða um stöðuna á markaðnum, árangurinn sem þegar hefur náðst og ekki síst hvar stærstu tækifæri framtíðarinnar liggja.
Fundarstjórn er í höndum Erlu Tinnu Stefánsdóttur viðskiptastjóra á iðnaðar- og hugverkasviði hjá Samtök um iðnaðarins.
Við hvetjum öll sem hafa áhuga á framtíð heilbrigðistækni að hlýða á áhugaverð erindi og skála saman yfir léttum veitingum!
Skráðu þig hér
Dagskrá
Heilbrigðistækni: Árangur og tækifæri framtíðarinnar
KL 16:30
Dagskrá hefst

Fundarstjóri | Erla Tinna Stefánsdóttir, Samtök Iðnaðarins
KL 16:45
Heilbrigðistækni á Íslandi: Staða, stefna og stuðningur
Í erindinu verður fjallað um þróun og stöðu heilbrigðistækni á Íslandi, helstu tölulegu niðurstöðurnar úr nýrri greiningu á heilbrigðis- og lífvísindum á Íslandi og mikilvægi stuðnings við geirann til framtíðar.

Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch,
KL 17:00
Leiðandi heilbrigðistækni Nox í Bandaríkjunum og Nox Medical tæknin sem umbreytir greiningu svefnsjúkdóma til framtíðar
Nox er leiðandi í notkun heilbrigðistækni í svefnlækningum í Bandaríkjunum og hefur náð góðum árangri með lausnum byggðum á skýjatækni og gervigreind. Fyrirtækið hefur umbreytt greiningu og meðferð svefnraskana með aukinni sjálfvirkni, nákvæmni og aðgengi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um vegferð Nox frá íslenskri nýsköpun yfir í alþjóðlega forystu, með áherslu á vottaðar stafrænar lausnir sem gera kleift að veita skilvirka og einstaklingsmiðaða svefnmeðferð.

Hulda Hallgrímsdóttir
KL 17:15
Ekki nóg að skapa lausnina, hvernig á að koma nýsköpun í heilbrigðiskerfinu í notkun?
Kjartan Þórsson læknir og einn stofnenda Prescriby deilir með okkur reynslusögu Prescriby. Hvernig verður klínísk reynsla af alvarlegu vandamáli innan heilbrigðiskerfisins að lausn, hvernig er henni komið í hendur notenda og hvaða virði skapast að lokum út frá lausninni?

Kjartan Þórsson
KL 17:30
Rétt þjónusta á réttum tíma: Tímabókanir í heilbrigðiskerfinu
Einar deilir frá reynslu sinni hjá Platorm 24 í Svíþjóð, en hann hefur nýlega tekið við starfi forstöðumanns nýsköpunar hjá Helix. Hann mun ræða um það hvernig endurhugsa megi tímabókanir í heilbrigðiskerfinu og valdefla fólk til að taka virkan þátt í eigin meðferð og fá rétta þjónustu á réttum tíma. Tímabókanir í heilbrigðiskerfinu snúast nefninlega ekki bara um þægindi, heldur forgang og stundum líf og heilsu fólks

Einar Geirsson
Panelumræður
Skál og spjall

Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch
Sérfræðingur í vísindum og nýsköpun, Fönn Consulting
Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, PhD. er reynslumikill leiðtogi og ráðgjafi á sviði nýsköpunar og vísinda. Sandra hefur áralanga reynslu af því að þjálfa og leiðbeina frumkvöðlum og fyrirtækjum í tengslum við nýsköpun, stjórnun og viðskiptaþróun. Hún hefur unnið með fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum og þekkt fyrir hagnýta og hvetjandi þjálfun sem stuðlar að vexti og varanlegum árangri. Sandra hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir eigin frumkvöðlastörf á sviði lífvísinda en starfar í dag sem leiðtogamarkþjálfi og ráðgjafi hjá eigin fyrirtæki með áherslu á nýsköpun, vísindi og frumkvöðlastarf.

Hulda Hallgrímsdóttir
Framkvæmdastjóri Nox Medical á Íslandi & COO Nox Health
Nox er leiðandi í notkun heilbrigðistækni í svefnlækningum í Bandaríkjunum og hefur náð góðum árangri með lausnum byggðum á skýjatækni og gervigreind. Fyrirtækið hefur umbreytt greiningu og meðferð svefnraskana með aukinni sjálfvirkni, nákvæmni og aðgengi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um vegferð Nox frá íslenskri nýsköpun yfir í alþjóðlega forystu, með áherslu á vottaðar stafrænar lausnir sem gera kleift að veita skilvirka og einstaklingsmiðaða svefnmeðferð.

Kjartan Þórsson
Stofnandi Prescriby
Kjartan Þórsson læknir og einn stofnenda Prescriby deilir með okkur reynslusögu Prescriby. Hvernig verður klínísk reynsla af alvarlegu vandamáli innan heilbrigðiskerfisins að lausn, hvernig er henni komið í hendur notenda og hvaða virði skapast að lokum út frá lausninni?

Einar Geirsson
Forstöðumaður nýsköpunar, Helix
Einar deilir frá reynslu sinni hjá Platform 24 í Svíþjóð, en hann hefur nýlega tekið við starfi forstöðumanns nýsköpunar hjá Helix. Hann mun ræða um það hvernig endurhugsa megi tímabókanir í heilbrigðiskerfinu og valdefla fólk til að taka virkan þátt í eigin meðferð og fá rétta þjónustu á réttum tíma. Tímabókanir í heilbrigðiskerfinu snúast nefninlega ekki bara um þægindi, heldur forgang og stundum líf og heilsu fólks

Erla Tinna Stefánsdóttir
Viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði, Samtök Iðnaðarins
Fundarstjórn viðburðarins verður í styrkum höndum Eru Tinnu sem er lögfræðingur að mennt og starfar í hagsmunagæslu fyrir hugverkaiðnað og nýsköpun hjá Samtökum iðnaðarins. Hennar leiðarljós er að bæta starfsumhverfi nýsköpunarfyrirtækja, enda segir hún nýsköpun vera grunn að samkeppnishæfni þjóða og þar með bættum lífskjörum.