09/04/2025
Viðburður
Örnámskeið | Meðferð og Iðunn
Á þessu örnámskeiði er fjallað um hvernig hjúkrunarfræðingar geta stillt upp Iðunnarferlum í einingunni Meðferð þannig að almennir notendur geta notað smáforritið Iðunn. Í framhaldi af því verður farið í notkun á smáforritinu Iðunn.
09/04/25 - 09/04/25
12:00 - 12:45
Teams | Fjarfundur
Námskeiðið er fyrir hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk sem notar smáforritið Iðunni.
Örnámskeiðið er um 20-25 mín og í lok námskeiðs er opið fyrir fyrirspurnir. Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.
Myndband
Meðferð og Iðunn | Upptaka

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir
Þjónustusérfræðingur hjá Helix
Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.