
30/04/2026
Viðburður
Námskeið í Sögu fyrir sjúkraþjálfaranema
Námskeið í Sögu sjúkraskrá sérsniðið að sjúkraþjálfaranemum sem eru á leið á vinnumarkaðinn.
30/04/26 - 30/04/26
16:00 - 17:00
Teams | Fjarfundur
Farið verður yfir grunnatriði við skráningu í Sögu, bæði á heilsugæslum og heilbrigðisstofnunum.
Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.
Skráningu lýkur þann 29. apríl kl 12:00.
Skráðu þig hér
Kennari

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir – „Gunna Sigga"
Þjónustusérfræðingur hjá Helix
Gunna Sigga hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008, fyrst sem kerfisstjóri á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og síðan hjá TM Software, Heilbrigðislausnum Origo og nú Helix, þar sem hún þjónustar notendur Sögu um allt land. Hún er menntaður kennari frá Kennaraháskóla Íslands með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga hefur mikla reynslu í kennslu á Sögu, skrifar vefhandbók kerfisins og Sögustundirnar og þekkir vel til nýjunga í Sögu.