background image
Læknir eða hjúkrunarfræðingur að vinna við tölvu

28/05/2025

Viðburður

Örnámskeið | Textaýn

Á þessu örnámskeiði verður kynning á nýrri útgáfu af textasýn. Einnig verða teknar fyrir algengustu spurningar sem þjónustudeild Helix fær um textasýnina.

28/05/25 - 28/05/25

12:00 - 12:45

Teams | Fjarfundur

Námskeiðið ætti að gangast öllum þeim sem vinna eitthvað með Textasýn í Sögu.

Örnámskeiðið er um 20-25 mín og í lok námskeiðs er opið fyrir fyrirspurnir. Námskeiðið er endurgjaldslaust en skráning er nauðsynleg.

Myndband

Textasýn í útgáfu 2025 af Sögu | Upptaka

Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir

Þjónustusérfræðingur hjá Helix

Guðrún Sigríður, betur þekkt sem Gunna Sigga, hefur unnið með Sögu kerfið frá árinu 2008 en þá starfaði hún sem kerfisstjóri Sögu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Frá árinu 2014 hefur hún starfað hjá TM Software, Origo Heilbrigðislausnum og núna Helix við það að þjónusta alla notendur Sögu kerfisins á landinu. Gunna Sigga er menntaður kennari, frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í upplýsingatækni. Gunna Sigga uppgötvaði fljótt í starfi sínu á HSS að það sem notendur Sögukerfisins vantar er kennsla og réttar stillingar notanda í Sögu og því hóf hún fljótlega að kenna Sögunotendum HSS á kerfið. Gunna Sigga hefur mikla reynslu að því að vera í samskiptum við notendur Sögu og kenna þeim helstu notkunarmöguleika í flestum einingum Sögu. Hún skrifar líka vefhandbók Sögu og Sögustundirnar og þekkir því vel til flestra nýjunga í Sögu.