Örugg og áreiðanleg hýsing á Sögu sjúkraskrá
Helix sér um heildarrekstur Sögu og þeirra innviða sem kerfið keyrir á. Með því fá viðskiptavinir aðgang að sérhæfðri rekstrar- og öryggisþekkingu án þess að þurfa að byggja hana upp hver fyrir sig. 24/7 öryggisvöktun og æfð viðbrögð við atvikum eru hluti af þjónustunni. Reksturinn byggir á skjalfestu ISO 27001 öryggisstjórnunarkerfi Helix, sem tryggir skýra ábyrgð, rekjanleika og stöðugar umbætur.

Af hverju að láta okkur sjá um hýsinguna?

Viðbrögð á einni hendi
Engin dreifð ábyrgð milli hýsingaraðila, rekstraraðila og endanotenda. Ef eitthvað kemur upp á þarf einungis að hafa samband við okkur.

Heildstæð 24/7 vöktun
24/7 SOC innbrotsvöktun frá Syndis, innviðavöktun frá Origo og gagnagrunnsvöktun hjá Apró, ásamt bakvakt frá Helix, allt samhæft í einu skipulagi með Helix sem heildarábyrgðaraðila.

Uppfærslur án truflana
Blue-green uppfærslur með engum niðritíma við útgáfur Sögu. Notandi fær nýjustu útgáfu af Sögu án aukakostnaðar og notendur verða ekki varir við uppfærslur.
Innifalið í þjónustu
Allt sem þarf fyrir öruggan rekstur
- Bakvakt og rekstrareftirlit
- Uppfærslur á Sögu án niðritíma
- 24/7 SOC innbrotsvakt frá Syndis
- Viðbragðsáætlun og endurheimt gagna og kerfa vegna atvika
- ISO 27001:2022 vottun
- Gögn vistuð á Íslandi undir íslenskri lögsögu