Tímabókun og tilvísanastjórnun

Silva: Láttu dagatalið vinna fyrir þig

Dagatalið á að hjálpa starfsfólkinu þínu, ekki öfugt. Of margar klukkustundir fara í símtöl, breytingar á tímum, áminningar og eftirfylgni. Á sama tíma tapast dýrmætir tímar vegna afbókana eða skjólstæðinga sem mæta ekki. Silva sér um samskiptin frá tilvísun til bókaðs tíma svo starfsfólkið þitt geti einbeitt sér að skjólstæðingum í stað umsýslu.

Silva

Af hverju að velja Silvu?

Minni umsýsla

Sjálfvirkar áminningar og eftirfylgni draga úr handavinnu og truflunum í daglegu starfi.

Færri tapaðir tímar

Lausir tímar sjást fyrr þegar afbókanir berast og auðveldara er að fylla í eyðurnar áður en tímar tapast.

Færri símtöl

Minni tími fer í símtöl þar sem skjólstæðingar staðfesta, færa og afbóka tíma sjálfir.

Meiri tími fyrir skjólstæðinga

Starfsfólk getur einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli sem er þjónustan.

Sjáðu muninn strax

Silva er hönnuð til að skapa ávinning strax. Uppsetning tekur aðeins nokkrar mínútur og þú getur byrjað að draga úr símtölum, afbókunum og handavinnu sama dag. Ef þú notar Sögu nú þegar tengist Silva beint við núverandi vinnulag, án flókinna innleiðinga eða truflana á rekstrinum.

Silva mobile

Virkar Silva án Sögu?

Silva er sjálfstæð og kerfisóháð lausn sem virkar með eða án Sögu og annarra sjúkraskrárkerfa. Hún getur jafnframt starfað sem sjálfstætt tímabókunarkerfi.

Læknir að skrá sig inn í sögukerfið

Kynningarfundur

Hversu mikinn tíma gæti þitt starfsfólk sparað?

Bókaðu kynningu og sjáðu hvernig Silva getur dregið úr símtölum, minnkað afbókanir og einfaldað daglegt starf í móttöku.

Bóka fund
Einar

Viltu vita meira?