Askja - tölfræði og skýrslur
Askja er úrvinnslutól sem vinnur með gögn úr Sögu. Bæði er boðið upp á skýrslur og aðgang í Excel með notkun svokallaðra gagnateninga eða kubba sem hægt er að snúa á ýmsa vegu.
![Hjúkrunarfræðingur að nota app](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fheilbrigdislausnir-vefur%2F2b50cfdb-1446-41e9-a56b-7d3362e8b909_Origo_heilsugaesla15144.jpg%3Fauto%3Dformat%2Ccompress&w=3840&q=100)
Askja er byggð á viðskiptagreindarlausnum Microsoft
Í boði eru bæði fastmótaðar skýrslur og aðgangur að gögnum í Excel með notkun gagnateninga eða kubba sem hægt er að snúa á ýmsa vegu. Gögnum hefur þá verið stillt upp með innbyrðis tengslum þannig að hægt er að nálgast þau út frá ýmsum sjónarhornum í veltitöflum (e. Pivot Tables) í Excel. Þannig er hægt að skoða ýmsa vinkla með því að draga mismunandi eigindi í raðir eða dálka eftir þörfum.
Sem dæmi um notkun á Öskju má hugsa sér eftirfarandi dæmi. Rannsakandi þarf að vita fjölda þeirra karlkyns sjúklinga á aldrinum 20-30 ára sem komu á heilsugæslustöð vegna magaverks frá 1. júní – 1. september, var sinnt af Jóni Jónssyni lækni, voru sendir í næmispróf og fengu Íbúfen. Mæling gagnakubbsins í dæminu er fjöldi sjúklinga og víddirnar sem ákvarða fjöldann eru kyn, aldur sjúklings, tilefni, komudagsetning, læknir, greining og lyf.
Þjónusta
Þjónustuborð Helix
Ef þú hefur áhuga á að fá frekari upplýsingar um Öskju smelltu hér
![Læknir](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fheilbrigdislausnir-vefur%2F21de4478-eaf4-44b2-b73c-663cf58ed57a_Origo_heilsugaesla14964%2B%25281%2529.jpg%3Fauto%3Dformat%2Ccompress&w=3840&q=75)