Hekla
Hekla er lokað rafrænt samskiptanet til sendinga á heilbrigðisgögnum á milli aðila á heilbrigðissviði. Allar heilbrigðisstofnanir landsins, öll apótek, Tryggingarstofnun, Sjúkratryggingar Íslands, Embætti Landlæknis og aðrir viðkomandi eru tengdir Heklu sem gerir mögulegt að senda rafræn gögn á milli ólíkra hugbúnaðarkerfa með öruggum, stöðluðum og auðveldum hætti.
![Hekla](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fheilbrigdislausnir-vefur%2F65285df4fbd9a45bcec8152d_Untitleddesign-1-.jpg%3Fauto%3Dformat%2Ccompress&w=3840&q=100)
Hagræðing og öryggi
Mikið hagræði er af rafrænum sendingum á heilbrigðisgögnum yfir Heklu, það eykur öryggi sjúklinga, bætir þjónustu, og spara tíma og fjármuni. Um tvær milljónir skeyta eru send yfir Heklu á degi hverjum sem gera um 712 milljón á ári. Þar af eru um 500 þúsund læknabréf.
Hekla heilbrigðisnet hefur verið í notkun á Íslandi frá 2007. Í dag eru allar heilbrigðisstofnanir landsins, öll apótek, Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands, Embætti landlæknis og aðrir tengdir netinu.
Hekla er eina almenna heilbrigðisnetið á Íslandi og gerir mögulegt að senda rafræn gögn á milli ólíkra hugbúnaðarkerfa með öruggum, stöðluðum og auðveldum hætti.
![Læknar að tala saman á heilsugæslu](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fheilbrigdislausnir-vefur%2Fdb8f6e8c-3e7b-44f8-9483-1879b7b7cdb3_Helix_heilsugaesla15112.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)
Tengingar og APIs
Viltu tengjast Heklu?
Sjáðu nánari upplýsingar um tengingar við Sögu sjúkraskrá, Heklu heilbrigðisnet og önnur kerfi Helix.
![Maður að nota app í síma](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fheilbrigdislausnir-vefur%2F6eba5942-2c52-4ac9-9563-0fd7ed11504d_Helix_Hrafnista5010.jpg%3Fauto%3Dformat%2Ccompress&w=3840&q=75)